Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sala áfengis hefur dregist talsvert saman í ÁTVR í ár. Það sem af er ári hafa selst um 7.730 þúsund lítrar af áfengi í Vínbúðunum en á sama tíma í fyrra seldist um 8.301 þúsund lítri. Nemur samdrátturinn tæpum 7%.
Samdráttur hefur verið í sölu hjá ÁTVR síðustu ár. Samdrátturinn nú er þó sýnu meiri en áður. Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu var sala áfengis hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins á síðasta ári 4,2% minni í lítrum talið en á árinu á undan. Var það fjórða árið í röð sem samdráttur er í sölu hjá ÁTVR í lítrum talið á milli ára.
Þegar rýnt er í sölutölur á einstökum vörutegundum kemur ýmislegt forvitnilegt í ljós. Þannig má sjá að sala á sterku áfengi hefur dregist saman um 9% á milli ára, sala á rauðvíni hefur dregist saman um tæp 12% og sala á freyðivíni um 6%. Hvítvínssala hefur dregist saman um 5% og sala á lagerbjór um 7%. Sala á rósavíni hefur hins vegar aukist um 13%.