Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Steve Rotheram, borgarstjóri í Liverpool, sagði í gær að stórar spurningar væru enn uppi um það hvernig ökumaður bifreiðar, sem ók á vegfarendur í meistarafögnuði borgarinnar í fyrrakvöld, hefði komist inn á Water Street, götuna þar sem mannþröngin var. Múgur og margmenni var í borginni í fyrrakvöld til þess að fagna Englandsmeistaratitli knattspyrnufélagsins Liverpool.
Jenny Sims, aðstoðarlögreglustjóri í Merseyside-sýslu, sagði á blaðamannafundi í gær að umfangsmikil rannsókn færi nú fram á árásinni, en lögreglan telur að um einangrað tilfelli hafi verið að ræða. Þá væru engar vísbendingar sem bentu til þess að um hryðjuverk hefði verið að ræða.
Sagði Sims að ökumaður bifreiðarinnar, 53 ára gamall hvítur karlmaður, hefði verið handtekinn vegna gruns um morðtilraun og háskaakstur. Þá væri hann einnig grunaður um að hafa ekið undir áhrifum vímuefna.
Alls særðust 47 manns í árásinni, þar af fjögur börn. Þurfti að flytja 27 þeirra á sjúkrahús, en gert var að sárum 20 manns á staðnum. Sims staðfesti að ellefu manns væru enn á sjúkrahúsi í gær, og að þau væru öll í stöðugu ástandi og virtust vera að ná sér vel. Hrósaði Sims viðbragðsaðilum fyrir að hafa brugðist fljótt og vel við hættulegum aðstæðum, en lögreglan umkringdi bifreiðina nánast um leið og hún staðnæmdist. Bað Sims fólk um að velta ekki vöngum opinberlega um árásina og tildrög hennar, auk þess sem Sims ráðlagði fólki að deila ekki myndefni af árásinni eða eftirleik hennar á netinu.
Í máli Sims kom fram að Water Street hefði verið lokað fyrir almennri bílaumferð, og að lögreglan hefði unnið með skipuleggjendum sigurhátíðarinnar í nokkra mánuði til þess að tryggja öryggi á hátíðinni. Telur lögreglan að ökumaðurinn hafi elt sjúkrabíl sem fékk að keyra inn fyrir götulokanir lögreglunnar til þess að hlúa að einstaklingi sem talið var að væri að glíma við hjartaáfall.
Knattspyrnufélagið Liverpool sendi frá sér yfirlýsingu í fyrrakvöld, þar sem félagið sagðist myndu veita lögreglunni alla mögulega aðstoð við rannsókn málsins. Billy Hogan, forstjóri Liverpool, sendi svo frá sér ávarp í gærmorgun, þar sem hann sendi innilegar samúðarkveðjur frá félaginu til allra þeirra sem hefðu fundið fyrir árásinni, bæði fórnarlamba og aðstandenda.
Sagði Hogan að helgin hefði verið tileinkuð gleði og fögnuði allra stuðningsmanna liðsins en hún hefði endað með þessum ólýsanlega harmleik.
Hrósaði Hogan jafnframt viðbragðsaðilum, lögreglu, sjúkra- og slökkviliði, fyrir skjót viðbrögð, sem og starfsmönnum þeirra fjögurra sjúkrahúsa, sem nú væru að hlynna fórnarlömbum árásarinnar. Skoraði hann á alla þá sem kynnu að búa yfir upplýsingum um árásina að gefa sig fram við lögregluna í Merseyside-sýslu.
Erkifjendur votta samúð sína
Árásin hefur vakið mikinn óhug í Bretlandi. Hafa helstu keppinautar Liverpool á knattspyrnuvellinum vottað félaginu samúð sína, þar á meðal bæði Everton og Manchester United. Sagði í tilkynningu frá síðarnefnda félaginu að hugur allra þar væri hjá Liverpool-félaginu og borginni.
Karl III. Bretakonungur tjáði sig einnig um árásina í gær og lýsti yfir djúpri sorg vegna hennar. Sagðist Karl þó vera viss um að hin mikla samheldni sem Liverpool-borg væri þekkt fyrir myndi veita þeim sem ættu um sárt að binda stuðning.