Andrea Sigurðardóttir
andrea@mbl.is
Benedikt Bogason, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og forseti Hæstaréttar, var á dögunum sæmdur heiðursdoktorsnafnbót hjá lagadeild Ohio Northern University í Bandaríkjunum, en nafnbótin var veitt við útskrift nemenda úr deildinni.
Í tilkynningu lagadeildar Háskóla Íslands kemur fram að lagadeildir háskólanna tveggja hafi átt í samstarfi í 65 ár.
Benedikt flutti ávarp við útskriftina sem fjallaði um langt og farsælt samstarf lagadeildanna. Hann lagði áherslu á að samhliða útskrift gengi lögfræðingur undir þá siðferðislegu skyldu að standa vörð um réttarríkið í öllum sínum störfum. Grunnstoðir réttarríkisins væru að enginn væri yfir lög hafinn, þau ættu að vera aðgengileg og gilda jafnt um alla. Ekkert væri gefið í þeim efnum.