Danska seglskipið Danmörk fyllir nú á vistir sínar í Reykjavíkurhöfn eftir að hafa lokið hringferð í kringum landið. Skipið er eitt helsta seglskip Danmerkur og jafnframt meðal fárra seglskipa af þessari gerð sem enn eru sjófær. Það var sjósett árið 1932 og hefur síðan þá verið starfræktur sjómennskuskóli um borð í skipinu.
Skipið siglir árlega með nemendur um Atlantshaf, en viðkoma skipsins í Reykjavík er hluti af fimm mánaða leiðangri sem hófst í Malaga á Spáni fyrr á þessu ári en skipið kom til Íslands frá Írlandi fyrr í mánuðinum.
Um borð í skipinu eru 80 nemendur auk 15 áhafnarmeðlima. Þar læra nemendurnir hefðbundin sjómennskustörf, s.s. að stýra skipi, lesa kort og fylgja siglingaleiðum. Íslendingar eiga sinn fulltrúa um borð að þessu sinni en það er hinn 21 árs Viktor Örn Ingvarsson, sem er nemandi í sjómannaskólanum. » 6