— Morgunblaðið/Karítas
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að afnema lengri þjónustutíma hjá sex leikskólum í borginni. Árið 2022 fór borgin í tilraunaverkefni þar sem einn eða tveir leikskólar í hverju hverfi voru opnir til kl

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt að afnema lengri þjónustutíma hjá sex leikskólum í borginni.

Árið 2022 fór borgin í tilraunaverkefni þar sem einn eða tveir leikskólar í hverju hverfi voru opnir til kl. 17 á meðan aðrir voru opnir til 16.30. Verkefnið átti að vera til tveggja ára. Ákveðið hefur verið að afnema þennan lengri þjónustutíma vegna þess hve fáir nýta sér úrræðið. Þegar mest var voru foreldrar 10 barna sem nýttu sér úrræðið en í maí nýttu foreldrar eins barns sér það.