Jón Þór Gunnarsson
Jón Þór Gunnarsson
Fasteignafélagið Kaldalón hefur breytt og þróað fjárfestingastefnu sína. Nú er sjónum einnig beint að innviðafjárfestingum en mikið hefur verið um það fjallað að undanförnu að vöntun er á fjárfestingum í uppbyggingu innviða

Fasteignafélagið Kaldalón hefur breytt og þróað fjárfestingastefnu sína. Nú er sjónum einnig beint að innviðafjárfestingum en mikið hefur verið um það fjallað að undanförnu að vöntun er á fjárfestingum í uppbyggingu innviða.

„Við tókum ákvörðun um að skoða fjárfestingar í innviðum. Það eru margar vísbendingar um að þar séu mikil tækifæri – bæði vegna vanfjárfestingar og uppsafnaðrar viðhaldsþarfar,“ segir Jón Þór Gunnarsson forstjóri Kaldalóns í samtali við ViðskiptaMoggann.

Jón Þór segir tímabært að umræða um svokölluð PPP-verkefni fái að þróast en það eru samstarfsverkefni opinberra og einkaaðila í þágu almennings og samfélags.

„Ef svona verkefni eiga að virka, þá þarf sá sem byggir að bera ábyrgð á rekstri og gæðum. Í sumum tilvikum þarf svo eignarhald að færast yfir til hins opinbera að loknum samningstíma,“ segir hann.

Slíkur samstarfsvettvangur gæti dregið úr álagi á opinbera aðila og tryggt betri nýtingu fjármuna. Jón Þór telur að þessi umræða sé loks að þroskast á Íslandi og að hún muni halda áfram að þróast á næstu misserum.

Hann segir að Kaldalón hafi getu til að taka þátt í slíkum verkefnum, hvort sem um sé að ræða skólahúsnæði, fráveitu eða annars konar mannvirki. Félagið leiti stöðugt að nýjum fjárfestingarkostum.