Karl 3. Bretakonungur flutti í gær stefnuræðu konungs í kanadíska þinginu, og lagði þar áherslu á fullveldi og frelsi Kanadamanna. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1977 sem þjóðhöfðinginn flytur ræðuna í eigin persónu, en venjulega er landstjóra Kanada falið að flytja stefnuræðuna
Karl 3. Bretakonungur flutti í gær stefnuræðu konungs í kanadíska þinginu, og lagði þar áherslu á fullveldi og frelsi Kanadamanna. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1977 sem þjóðhöfðinginn flytur ræðuna í eigin persónu, en venjulega er landstjóra Kanada falið að flytja stefnuræðuna.
Sagði Karl m.a. að Kanada yrði áfram að vera „sterkt og frjálst“ og vísaði þar í þjóðsöng landsins, en auk þess sagði hann að kanadíska ríkisstjórnin myndi verja lýðræði landsins gegn öllum ógnum.