Tónlist Kennarar segja niðurskurð í tónlistarkennslu nær sífelldan.
Tónlist Kennarar segja niðurskurð í tónlistarkennslu nær sífelldan. — Morgunblaðið/Golli
Stjórn Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT) lýsir áhyggjum sínum af þróun og niðurskurði til tónlistarskóla í landinu. Margrét Hrafnsdóttir formaður FÍT segir ljóst að niðurskurður muni fækka nemendum í tónlistarnámi sem geti í kjölfarið leitt af…

Sveinn Valfells

sveinnv@mbl.is

Stjórn Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT) lýsir áhyggjum sínum af þróun og niðurskurði til tónlistarskóla í landinu.

Margrét Hrafnsdóttir formaður FÍT segir ljóst að niðurskurður muni fækka nemendum í tónlistarnámi sem geti í kjölfarið leitt af sér vítahring, þar sem skólarnir fái svo lægri styrki eftir því sem nemendum fækkar. Þá segir hún niðurskurð í tónlistarnámi hlutfallslega mjög mikinn þar sem starfsemi í tónskólum hafi ekki haldist í hendur við íbúafjölgun.

„Við státum af framúrskarandi tónlistarfólki á heimsmælikvarða. Ef við viljum að svo verði um ókomna tíð þurfum við að hlúa að og styðja við tónlistarskólana og menntun tónlistarkennara. Hlutverk tónskóla er ekki aðeins að framleiða tónlistarmenn, heldur ala þeir einnig upp áhugamenn um tónlist og sinna þar með gífurlega mikilvægri samfélagslegri skyldu. Ef fram fer sem horfir getum við séð þetta kollvarpast í tómum tónlistarsölum í framtíðinni,“ segir Margrét.

Höf.: Sveinn Valfells