Vestfirsku athafnalífi er stefnt í voða með veiðigjaldafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson stofnandi Kerecis í umsögn sinni um frumvarpið. „Með einu pennastriki skal soga með hækkun veiðigjalda meira en hálfan milljarð …

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Vestfirsku athafnalífi er stefnt í voða með veiðigjaldafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson stofnandi Kerecis í umsögn sinni um frumvarpið.

„Með einu pennastriki skal soga með hækkun veiðigjalda meira en hálfan milljarð króna úr vestfirsku efnahagslífi til Reykjavíkur.“

Alls bárust atvinnuveganefnd Alþingis 46 umsagnir um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar áður en frestur rann út á mánudag. Langflestar eru þær gagnrýnar á frumvarpið og vinnubrögðin við gerð þess.

Líftæknifyrirtækið Kerecis á Íslandi, sem spratt af sjávarútvegi, skilar sjálfstæðri umsögn og varar við fljótfærni í lagasmíð. Frumvarpið krefjist „faglegri meðferðar, aukins samráðs, ítarlegri greiningar og nánari samfélagsumræðu“ áður en það fái afgreiðslu á Alþingi. Minnt er á hvað sé í húfi, útflutningstekjur sjávarútvegs hafi í fyrra numið nær 350 milljörðum króna eða um 18% allra útflutningstekna.

„Slíkir hagsmunir gera sjálfsagða kröfu til ríkisstjórnar og þings að vandað sé til verka og viðfangsefnið meðhöndlað af þeirri virðingu sem það á skilið. Að öðrum kosti er ein meginforsenda íslenskrar velferðar í uppnámi með tilheyrandi áhættu fyrir íslenskt samfélag.“

Samtök sjávarútvegsfyrirtækja (SFS) finna einnig að vinnubrögðunum, en ganga lengra og saka ráðherra um villandi framsetningu.

Frumvarpið byggist að hluta á vinnu dr. Sig­bjørns L. Tvetera­as, sem atvinnuvegaráðherra og fjármálaráðherra sögðu við kynningu frumvarpsins „helsta sér­fræðing Noregs í verð­myndun á upp­sjávar­fiski“. Þótt hann sé alls góðs maklegur sé hann ekki sérfræðingur á þessu sviði og hafi þurft að afla sér grunn­upp­lýsinga um norska kerfið áður en hann tók saman gögn fyrir ráðherrana. Í því hafi ekki falist saman­burðar­greining á verð­myndun á Ís­landi og í Noregi og raunar ekki á Ísland minnst. » 4 og 12

Höf.: Andrés Magnússon