Íþróttir Soccer & Education USA hefur aðstoðað hundruð íslenskra nemenda við að komast í nám til Bandaríkjanna en ekkert lát virðist vera á því.
Íþróttir Soccer & Education USA hefur aðstoðað hundruð íslenskra nemenda við að komast í nám til Bandaríkjanna en ekkert lát virðist vera á því. — Morgunblaðið/Eyþór
Brynjar Benediktsson, annar stofnandi fyrirtækisins Soccer & Education USA, sem aðstoðar íslenska nemendur við að fá íþróttastyrki frá bandarískum háskólum, segir nýlega tilskipun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stoppa vegabréfsáritanir…

Elínborg Una Einarsdóttir

elinborg@mbl.is

Brynjar Benediktsson, annar stofnandi fyrirtækisins Soccer & Education USA, sem aðstoðar íslenska nemendur við að fá íþróttastyrki frá bandarískum háskólum, segir nýlega tilskipun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stoppa vegabréfsáritanir til alþjóðlegra nemenda ekki hafa haft nein áhrif á starfsemi fyrirtækisins.

Í vikunni fyrirskipaði stjórn Trumps öllum sendiráðum landsins að hætta tímabundið að taka við umsóknum námsmanna um vegabréfsáritanir. Þetta er ekki eina tilskipunin frá forsetanum er varðar háskóla í landinu en mikið hefur verið fjallað um óvissu sem nú ríkir innan háskólasamfélagsins vestanhafs í fjölmiðlum.

Aðspurður segir Brynjar þetta ekki hafa haft áhrif á störf Soccer & Education USA.

„Það eru örugglega að fara áttatíu, níutíu krakkar frá okkur út í haust og við erum í mjög góðum samskiptum við sendiráðið. Það hafa krakkar verið að bóka fundi áfram og ekkert vesen með það, sem er mjög jákvætt,“ segir Brynjar og bætir við:

„Einhverjir eru enn að fá boð um styrki núna og eru að fara út en eru ekki enn komin með skóla en það er að fara að klárast á næstu vikum.“

Þá segir hann ástandið hafa lítil áhrif á þá nemendur sem þegar eru staddir í Bandaríkjunum.

„Maður les fréttirnar hérna heima um stöðuna en svo er gaman að tala við krakkana sem eru úti og þau eru bara í skólanum og að spila íþróttina sína og þetta hefur ekki nein áhrif á þau. Það er meira að segja þannig að þessar háskólaíþróttir eru að stækka og stækka. Það er að koma miklu meiri peningur í þær og sumir eru jafnvel byrjaðir að fá greitt fyrir að spila í háskólum,“ segir Brynjar.

Spurður hvort umræða um óvissu í háskólasamfélaginu vestanhafs hafi þau áhrif að íslenskir nemendur séu meira hikandi við að sækja skóla í Bandaríkjunum, segir Brynjar svo ekki vera. „Fólk spáir alveg í þetta en svo eru þau að sjá vini sína fara út í skóla og tala við þjálfara og fá boð um styrki.“

Höf.: Elínborg Una Einarsdóttir