Gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um alvarlega stunguárás í Úlfarsárdal hefur verið framlengt um fjórar vikur, eða til 25. júní, á grundvelli almannahagsmuna.
Í síðustu viku var karlmaður um fertugt handtekinn og úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald, þá á grundvelli rannsóknarhagsmuna, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Árásin átti sér stað um miðjan dag og urðu margir vegfarendur vitni að henni, þar á meðal börn á leið heim úr skóla. Árásarmaðurinn stakk karlmann á fimmtugsaldri í kviðarhol með stórum hnífi. Hann var fluttur alvarlega slasaður á spítala en er á batavegi.