Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Óperan Síminn fékk mjög góðar viðtökur á Óperudögum 2022 og 2023 og verður nú flutt aftur, að þessu sinni án hljómsveitar í Iðnó. Fjórar hádegissýningar, 22., 23. og 25. júní og 1. júlí, eru komnar í sölu (tix.is) en allt stefnir í að fleiri sýningar verði síðsumars. „Ég held að þessar sýningar eigi eftir að slá í gegn sem fyrr,“ segir Hallveig Rúnarsdóttir sópran, sem er í hlutverki Lucyar. Áslákur Ingvarsson barítón leikur Ben, Hrönn Þráinsdóttir spilar á píanó og Pálína Jónsdóttir er leikstjóri. Friðþjófur Þorsteinsson er hönnuður sýningarinnar.
Gian Carlo Menotti samdi óperuna Símann (The Telephone) árið 1947. Hún fjallar um áhrifavaldinn Lucy og Ben, kærasta hennar, sem nær engu sambandi við hana. „Lucy er misheppnaður áhrifavaldur en leggur mikið á sig, þó að henni gangi misvel í starfi sínu,“ segir Hallveig. „Hún er eins og aðrir áhrifavaldar, alveg límd við símann sinn og á í meiri samskiptum við símann en nokkra aðra manneskju.“ Ben er að reyna að biðja hennar en það gengur brösuglega því hann kemst ekki að henni. En hann gefst ekki upp og beitir króki á móti bragði.
Ekkert samband
„Þetta er grínsýning með alvarlegum undirtóni,“ heldur Hallveig áfram. „Þetta er það sem við horfum upp á alla daga, sérstaklega í sambandi við unga fólkið okkar. Við náum bara ekki sambandi við það, sem er límt við tækið.“
Sýningin hefur breyst samfara tæknivæðingu undanfarna áratugi. „Þegar hún var fyrst sett upp var bara snúrusími,“ minnir Hallveig á. Þau hafi fengið Baggalútinn Braga Valdimar Skúlason til að þýða verkið, staðfæra það og setja í nútímabúning. Í uppsetningunni sé stór skjár þar sem gestir sjái síma Lucyar allan tímann. Hún sé sjálf á kafi í samfélagsmiðlum og viðkomandi umhverfi. „Við höfum líka uppfært textann, því slangrið er allt annað nú en áður,“ minnir Hallveig á. „Ég er svo heppin að eiga dóttur á svipuðum aldri og Lucy er og hún þekkir slangrið. Sýningin talar því mjög vel inn í samtímann.“
Opnuð hefur verið sérstök síða á Instagram undir heitinu „lusilicious_hotstuff“, þar sem upplýsingar í léttum dúr birtast reglulega fram að frumsýningu. „Áhrifavaldar fá að sjálfsögðu frítt inn ef þeir „tagga“ sýninguna,“ segir Hallveig.
Uppsetningin með hljómsveit á Óperudögum 2022 var viðamikil og ekki fjárhagslega hagkvæm með almennar kvöldsýningar í huga, að sögn Hallveigar. Á Óperudögum 2023 hafi þau getað nýtt sér hljómsveit hátíðarinnar og því flutt verkið aftur en síðan hafi þau leitað allra leiða til að finna flöt á frekari uppsetningum. Sýningin taki aðeins um 25 mínútur í flutningi og henti því best sem hádegissýning. Þeir sem sjái um reksturinn í Iðnó hafi sýnt mikinn áhuga á að fá verkið í húsið og þá hafi ekkert verið til fyrirstöðu. „Innifalið í miðaverðinu er súpa og brauð og þetta verður kósí og skemmtilegt.“