Kári Snorrason
ks@mbl.is
Sjómannadagshelgin verður haldin hátíðleg í Grindavík um komandi helgi. Hátíðin ber þó ekki nafnið Sjóarinn síkáti, líkt og hefð er fyrir, en hátíðin verður með látlausari hætti í ár í ljósi aðstæðna í bænum.
„Við höldum í hátíðlegar hefðir samhliða dagskrá fyrir fjölskyldufólk. Við eigum von á því að það verði margt í bænum,“ segir Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkur.
Sjóarinn er að hvíla sig
Sjómannadagshelgin í Grindavík er heitið sem skipuleggjendur féllust á í ár. Eggert Sólberg segir Sjóarann síkáta vera í hvíld.
Eggert segir ákvörðunina um nafnabreytinguna hafa verið tekna í skyndi, og þar sem lítill fyrirvari hafði verið féllust skipuleggjendur á annað nafn. Skipuleggjendur hátíðarinnar vilja kanna hvernig framkvæmd hennar gangi í ár en vonast til að nafnið Sjóarinn síkáti verði tekið upp aftur að ári.
Hátíðin hafði verið haldin í Grindavík í rúman aldarfjórðung. Vegna aðstæðna í Grindavík í fyrra fengu Grindvíkingar heimaskjól fyrir hátíðina á Reykjavíkurhöfn. Hátíðarhöldin voru samhliða hefðbundnum fögnuði sjómannadagsins í Reykjavík. Hátíðarhöldin gengu vel og var haldið upp á fasta liði Sjóarans síkáta. Þá voru Grindvíkingar sérstakir heiðursgestir hátíðarinnar.
Að sögn Eggerts telja skipuleggjendur og yfirvöld ekki þörf á auknum öryggisráðstöfunum þrátt fyrir þær hamfarir sem gengið hafa yfir á svæðinu. Von er á góðu veðri og búist er við margmenni. Eggert segir ánægjulegt að geta haldið upp á sjómannadaginn aftur í Grindavík eftir allt sem gengið hefur þar á.
Þó svo að fögnuður Grindvíkinga verði látlausari en hefð er fyrir verður mikið um að vera um komandi helgi. Dagskráin er fjörug og er eitthvað fyrir alla aldurshópa. Á laugardag verður pílu- og golfmót og bifhjólaklúbburinn Grindjánar verður með opið hús. Því næst slá fyrirtæki úr Grindavík upp balli í Kvikunni. Á sunnudag verður hátíðleg sjómannadagsmessa. Að messu lokinni verður gengið að Von og minning drukknaðra og týndra sjómanna heiðruð. Auk þess er fjölskylduskemmtun og sjómannaþrautir á borð við kararóður og flekahlaup, ásamt fleiri öðrum skemmtilegum viðburðum.
Sjómannadagurinn
Fyrsta sunnudag júnímánaðar á ári hverju.
Haldinn hátíðlegur frá árinu 1938.
Sjómannadagsfögnuður nú haldinn hátíðlegur um land allt.
Heiðrar íslenska sjómenn og mikilvægi sjómennsku fyrir þjóðina.
Hátíðin Sjóarinn síkáti fyrst haldin árið 1996.
Sjóarinn síkáti síðast í Grindavík fyrir tveimur árum.