Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur næstkomandi sunnudag, þétt dagskrá verður víða um landið. Haldið hefur verið upp á daginn frá árinu 1938. Mikið verður um að vera á Grandagarði í Reykjavík, sjómenn verða heiðraðir í Hörpu, fyrir yngri kynslóðina verður sjávartívolí með ýmsum þrautum og seinna meir stíga VÆB-bræður á svið svo fátt eitt sé nefnt. Dagskrá Hafnarfjarðarbæjar er vart síðri, meðal annars verður keppt í kappróðri og aflraunakeppni þar sem titillinn sterkasti maður Íslands verður í húfi. Landhelgisgæslan og Björgunarsveit Hafnarfjarðar verða með tilþrifamikla sýningu af björgunaræfingu, þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar verður í aðalhlutverki.