Tíu ára drengur lést í slysi er dráttarvél hafnaði í Hvítá í Hrunamannahreppi á miðvikudag. Í tilkynningu lögreglu segir að dráttarvélin hafi runnið fram af háum bakka og hafnað ofan í ánni. Drengurinn fannst skömmu eftir slysið og var úrskurðaður látinn á vettvangi. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn á tildrögum slyssins og er sú vinna á frumstigi.
Drengurinn hét Víglundur Þorsteinsson og bjó í Haukholtum ásamt foreldrum sínum og þremur systkinum. Slysið varð skammt frá bænum sem liggur við Hvítá.
Í gær var unnið að því að ná ökutækinu upp úr ánni en aðstæður á vettvangi voru erfiðar, að því er fram kom í tilkynningu lögreglu.
„Lögreglan vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra viðbragðsaðila sem komu að björgunaraðgerðum í gær sem og þeirra aðila sem hafa unnið að því að ná dráttarvélinni upp í dag,“ segir þar m.a.
Bænastund var haldin í Hrunakirkju í gærkvöldi.