Kirkjan á Hellnum á Snæfellsnesi er hrörleg að sjá og farin að líkjast lýsingunni úr bók Halldórs Laxness Kristnihaldi undir Jökli. Í bók þeirri höfðu kvartanir borist biskupi vegna prestsins Jóns Prímusar sem var sagður hafa vanrækt embættisskyldur sínar
Kirkjan á Hellnum á Snæfellsnesi er hrörleg að sjá og farin að líkjast lýsingunni úr bók Halldórs Laxness Kristnihaldi undir Jökli. Í bók þeirri höfðu kvartanir borist biskupi vegna prestsins Jóns Prímusar sem var sagður hafa vanrækt embættisskyldur sínar.
Árni Sæberg ljósmyndari tók þessa mynd er hann var á ferð um Snæfellsnesið á dögunum. Þar ber krossinn á kirkjuturninum við bláan himin í sömu hæð og Fellskrossinn efst á Stapafellinu.