Sjóminjar Frítt verður inn á safnið á sjómannadaginn 1. júní.
Sjóminjar Frítt verður inn á safnið á sjómannadaginn 1. júní. — Ljósmynd/Sjóminjasafnið
Í tilefni sjómannadagsins og 20 ára afmælis býður Sjóminjasafnið í Reykjavík gestum frítt inn á allar sýningar safnsins og um borð í varðskipið Óðin sunnudaginn 1. júní. Slysavarnafélagið Landsbjörg verður með kaffisölu í Bryggjusalnum til styrktar sínu starfi og harmonikkutónar munu óma um salinn

Í tilefni sjómannadagsins og 20 ára afmælis býður Sjóminjasafnið í Reykjavík gestum frítt inn á allar sýningar safnsins og um borð í varðskipið Óðin sunnudaginn 1. júní. Slysavarnafélagið Landsbjörg verður með kaffisölu í Bryggjusalnum til styrktar sínu starfi og harmonikkutónar munu óma um salinn. Dagskráin stendur frá kl. 10-17.

„Glöggt er gests augað“ er ný sýning í Vélasalnum en sýningin er tileinkuð sögufrægum Íslandsleiðöngrum franska sjóherlæknisins og náttúruvísindamannsins Pauls Gaimard árin 1835 og 1836. Að sýningunni standa nemendur í námskeiði á vegum Hagnýtrar menningarmiðlunar við Háskóla Íslands, í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur. Sérstakur ráðgjafi sýningarinnar er Sumarliði Ísleifsson, doktor í sagnfræði og höfundur bókarinnar Í fjarska norðursins.