Skólabygging Framkvæmdin á lóð Fjölbrautaskólans var ekki grenndarkynnt þar sem samþykkt hverfisskipulag fyrir efra Breiðholt liggur fyrir.
Skólabygging Framkvæmdin á lóð Fjölbrautaskólans var ekki grenndarkynnt þar sem samþykkt hverfisskipulag fyrir efra Breiðholt liggur fyrir. — Morgunblaðið/Karítas
Ekki fór fram grenndarkynning vegna byggingar nýrrar verknámsaðstöðu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti (FB). Í svari Reykjavíkurborgar, vegna fyrirspurnar Morgunblaðsins, var byggingin ekki grenndarkynnt þar sem gert er ráð fyrir henni í hverfisskipulagi Breiðholts sem samþykkt var 2022

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Ekki fór fram grenndarkynning vegna byggingar nýrrar verknámsaðstöðu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti (FB). Í svari Reykjavíkurborgar, vegna fyrirspurnar Morgunblaðsins, var byggingin ekki grenndarkynnt þar sem gert er ráð fyrir henni í hverfisskipulagi Breiðholts sem samþykkt var 2022. Jafnframt fylgdu svari borgarinnar gögn um útgefin leyfi fyrir byggingunni og tilvísun í hverfisskipulag Breiðholts þar sem fram kemur meðal annars að til standi að byggja á bílastæðum við Austurberg, byggja ofan á fjölbýlishús og heimila atvinnurekstur í íbúðarhúsnæði.

Byggingarreitir stækkaðir

Greinargerð hverfisskipulagsins fyrir efra Breiðholt er 633 síður og á síðu 579 kemur fram að við Hraunberg 6 verði heimilað að byggja tvær kennslubyggingar fyrir Fjölbrautaskólann. Reiturinn sem hús FB rís á er skilgreindur sem miðsvæði samkvæmt gildandi aðalskipulagi. Hús fjölbrautaskólans verður 2.654 fermetrar og í tilkynningu frá Stjórnarráðinu þegar fyrsta skóflustungan var tekin í lok nóvember á síðasta ári kom fram að nýja viðbyggingin muni stórauka aðgang að starfs- og verknámi á höfuðborgarsvæðinu og meira en tvöfalda starfsnámsaðstöðu FB. Á þessum reit verða byggingarreitir á lóðum stækkaðir og viðbótarbyggingarheimildir gefnar fyrir nýbyggingar og viðbyggingar. Eins og áður hefur komið fram verður heimilað að byggja tvær kennslubyggingar fyrir Fjölbrautaskólann í Breiðholti við Hraunberg 6. Við Gerðuberg 1 verður heimilað að byggja dansmiðstöð og torgið við Gerðuberg verður í forgangi fyrir endurhönnun.

Atvinnustarfsemi innan íbúða

Í hverfisskipulaginu kemur líka fram að heimilt er að byggja á lóðum fjölbýlishúsa við Austurberg, bæði er heimilt að byggja ofan á húsin og einnig á bílastæðunum.

Við Austurberg 2-20 eru skilmálar um bílastæði úr eldra deiliskipulagi felldir úr gildi og yfirfærðir í nýja skilmála hverfisskipulags. Byggingarreitir á lóðum eru stækkaðir og heimild gefin fyrir viðbótarhæð á fjölbýlishús með því skilyrði að lyftu sé komið fyrir. Viðbótarbyggingarheimildir eru gefnar fyrir viðbyggingar og heimilað að stunda atvinnustarfsemi innan íbúða. Einnig verður heimilað að byggja sorpskýli, hjólaskýli og smáhýsi á lóðunum auk þess sem fjöldi bílastæða á lóð verður endurskilgreindur.

Byggt á bílastæðum

Við Austurberg 28-38 verður heimilt að byggja tveggja hæða nýbyggingar á bílastæðum við húsin. Samkvæmt skipulaginu eiga nýjar uppbyggingarheimildir að hafa það að markmiði að nýta landið betur, styrkja byggð, byggðamynstur og götumynd. Miðað er við að í nýbyggingu sé atvinnustarfsemi og íbúðir aðallega á efri hæðum. Kjallarar eru hluti af hámarksbyggingarmagni A-rýma á lóð, sjá skilmála um kjallara. Hámarksbyggingarmagn kjallara hverrar nýbyggingar er 600 m².

Í hverfisskipulaginu er einnig heimilað að byggja hús á bílastæðum FB sem eru á milli skólans og sundlaugarinnar, þar sem yfir 100 bílastæði verða lögð niður. Á horni Austurbergs og Hraunbergs er heimild fyrir byggingu á grænu svæði við húsið nr. 28 við Austurberg. Á bílastæði verslunarhússins við Hraunberg 4 er gert ráð fyrir þriggja hæða húsi og heimilt að byggja eina hæð ofan á verslunarhúsið. Aðkoma að menningarmiðstöðinni Gerðubergi er meðfram húsinu við Gerðuberg 1, en þar stendur til að byggja þriggja hæða hús á bílastæðinu, auk þess sem leyfi er fyrir einni hæð ofan á húsið. Einnig er gert ráð fyrir einni hæð ofan á hús heilsugæslunnar við Hraunberg 6.

Ekki náðist í Dóru Björt Guðjónsdóttur, formann skipulagsráðs Reykjavíkur, við vinnslu fréttarinnar, en spurningin til borgaryfirvalda er sú hvort öll þau uppbyggingaráform sem samþykkt eru í hverfisskipulagi hafi það vægi að ekki þurfi að kynna íbúum þau frekar.

Hverfisskipulag

Greinargerð hverfisskipulagsins er 633 síður og á síðu 579 kemur fram heimild til að byggja við Fjölbrautaskólann.

Því þarf ekki að grenndarkynna framkvæmdina.

Heimilt er að byggja á lóðum fjölbýlishúsa við Austurberg, bæði ofan á húsin og einnig á bílastæðunum.

Yfir 100 bílastæði við FB og sundlaugina þurfa að víkja.

Höf.: Óskar Bergsson