Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Eigendur skrifstofuhúsnæðis í miðborginni hafa sýnt því áhuga síðustu misserin að breyta húsnæðinu í íbúðir.
Nýlega tók skipulagsfulltrúi Reykjavíkur til afgreiðslu fyrirspurn frá eiganda húsanna Hafnarstrætis 5 og 7 um hvort leyft yrði að útbúa íbúðir á 2., 3. og 4. hæð húsanna, Tryggvagötumegin.
Þetta eru tvö sambyggð hús sem áður hýstu skrifstofur Landsbankans. Á jarðhæð eru verslanir og veitingahús.
Í umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa kemur fram að áformað sé að innrétta þarna 18 litlar íbúðir. Íbúðirnar verði 1-3 herbergja, 22-51 fermetri að stærð.
Verkefnastjórinn segir að mikilvægt sé að íbúðir í húsinu séu fjölbeyttar að stærð og hafi góða dagsbirtu.
Er það hans mat að meira en helmingur íbúðanna muni eingöngu snúa til norðurs og það sé óæskilegt með tilliti til sólar.
Samkvæmt tillögu séu engar svalir á íbúðunum og er lagt til að skoðaðir verði möguleikar á svokölluðum frönskum svölum.
Verkefnastjórinn gerir ekki athugasemdir við að íbúðir verði á efri hæðum húsanna enda samræmist það aðalskipulagi. En ljóst sé að það verði áskorun að uppfylla öll skilyrði hvað varðar íbúðarhúsnæði. Meðal annars þurfi að gera grein fyrir fyrir bíla- og hjólastæðamálum, hljóðvist, úrgangslausnum og dvalarsvæði íbúanna.
„Að öllu þessu sögðu er það jafnframt áhugavert að fá íbúðir í miðrborgina. Það mun skapa fjölbreyttara og líflegra umhverfi, þar sem gott er að nýta eldra húsnæði og nýja borgarrýmið hinum megin við götuna er styrkt með lífi og aukunni notkun,“ segir í umsögn verkefnastjórans.
Skipulagsfulltrúinn samþykkir umsögnina og kveðst ætla að taka frekari afstöðu til útfærslu þegar og ef ítarlegri gögn berast.
Í maí 2024 var tekin fyrir hjá skipulagyfirvöldum fyrirspurn þess efnis hvort leyft yrði hækka húsin Hafnarstræti 5-7 um tvær hæðir. Beiðninni var synjað því hækkun
þeirra var talin hafa verulega neikvæð áhrif á mikilvægt almenningsrými við Tollhúsið í formi skuggavarps.
Eldra húsið, Hafnarstræti 5, var byggt 1929 af Mjólkurfélagi Reykjavíkur. Það er glæsileg bygging sem setur mikinn svip á miðborgina. Arkitekt var hinn kunni húsameistari Einar Erlendsson.