— Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Litlar hreyfingar voru á Siglufjarðarvegi við Almenninga í vetur. Vegurinn er illa farinn en hann hreyfist um einn metra á ári hverju. Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands hefur ásamt Vegagerðinni fylgst með Siglufjarðarvegi undanfarin tvö ár

Litlar hreyfingar voru á Siglufjarðarvegi við Almenninga í vetur. Vegurinn er illa farinn en hann hreyfist um einn metra á ári hverju.

Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands hefur ásamt Vegagerðinni fylgst með Siglufjarðarvegi undanfarin tvö ár. Mælitækjum hefur verið komið fyrir á níu stöðum á veginum til að fylgjast með þróuninni.

Halldór Geirsson, dósent í jarðeðlisfræði, sér um mælingarnar en hann segir í samtali við Morgunblaðið að vegurinn hafi komið ágætlega undan vetri. Úrkomulítill vetur hafi haft jákvæð áhrif á sig vegarins, og litlar leysingar hafi orðið síðustu misseri.

Vegagerðin hefur þegar boðið út rannsóknarboranir á mögulegri jarðgangaleið milli Fljóta og Siglufjarðar á Tröllaskaga. ks@mbl.is