Hörður Þorleifsson augnlæknir lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 24. maí síðastliðinn, á 97. aldursári. Hörður fæddist 28. maí 1928 í Reykjavík og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Þorleifur Eyjólfsson, byggingarmeistari og arkitekt, og Guðlaug Margrét Halldórsdóttir húsfreyja

Hörður Þorleifsson augnlæknir lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 24. maí síðastliðinn, á 97. aldursári.

Hörður fæddist 28. maí 1928 í Reykjavík og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Þorleifur Eyjólfsson, byggingarmeistari og arkitekt, og Guðlaug Margrét Halldórsdóttir húsfreyja.

Hörður lauk stúdentsprófi frá MR 1948, embættisprófi í læknisfræði frá HÍ 1954, öðlaðist lækningaleyfi 1956 og sérfræðileyfi í augnlækningum 1965.

Hörður var aðstoðarlæknir á Hvammstanga 1954-55, kandídat á Landspítalanum 1955-56, héraðslæknir á Hvammstanga 1956-1961, staðgengill aðstoðarlæknis á augndeild Akademiska sjukhuset í Uppsölum 1961-62, aðstoðarlæknir þar 1962-64, staðgengill aðstoðarlæknis á Háskólasjúkrahúsinu Umeå, taugasjúkdómadeild, 1964, og staðgengill yfirlæknis sama ár. Þá var hann aðstoðarlæknir á Landspítala 1964 og Borgarspítala 1965 og dvaldist við nám á Moor­fields Eye Hospital og Institute of Opthalmology í London árin 1961, 1971 og 1984.

Hörður var starfandi augnlæknir í Reykjavík frá 1966 og fór einnig í augnlækningaferðir út á land. Hann var aðstoðarlæknir á Regionsjukhuset í Örebro 1966, augnlæknir við sjúkrahúsið Sólheima í Reykjavík 1966-67, sérfræðingur á augndeild Landakotsspítala (síðar Sjúkrahúss Reykjavíkur) 1969-1996 og var lengi ráðgefandi augnlæknir á Hrafnistu í Reykjavík.

Hörður gegndi ýmsum félagsstörfum fyrir augnlækna. Hann sat í stjórn Læknafélags Reykjavíkur, var formaður samninganefndar sérfræðinga, sat í stjórn Augnlæknafélags Íslands og formaður um skeið.

Eftirlifandi sambýliskona Harðar er Jónína Ólöf Helgadóttir, f. 1930. Synir Harðar með fyrri eiginkonu, Huldu Tryggvadóttur, f. 1924, d. 1987, eru Hjalti, f. 1951, Egill, f. 1953, d. 2022, og Kjartan, f. 1953. Seinni kona Harðar var Finnfríður Jóhannsdóttir, f. 1936, d. 2005. Synir hennar og stjúpsynir Harðar eru Jóhann og Viðar Traustasynir. Barnabörn Harðar eru sex og lang­afabörnin fjögur.

Útför Harðar fer fram frá Digraneskirkju 10. júní kl. 14.