Leit Viðbragðsaðilar leituðu mannsins í rúmar fimm klukkustundir í gær.
Leit Viðbragðsaðilar leituðu mannsins í rúmar fimm klukkustundir í gær. — Morgunblaðið/Hákon
Leit að manni í sjónum við Fiskislóð var frestað á tíunda tímanum í gærkvöldi og verður staðan endurmetin í dag, að sögn lögreglu. Tilkynning frá sjónarvottum barst um að sundmaður væri í sjónum við Fiskislóð og hófst leit rétt fyrir klukkan 17 í gær

Leit að manni í sjónum við Fiskislóð var frestað á tíunda tímanum í gærkvöldi og verður staðan endurmetin í dag, að sögn lögreglu.

Tilkynning frá sjónarvottum barst um að sundmaður væri í sjónum við Fiskislóð og hófst leit rétt fyrir klukkan 17 í gær. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sá lögregla manninn í stutta stund eftir að tilkynningin barst.

Töluverður fjöldi viðbragðsaðila kom að leitinni en á meðal þeirra voru lögregla, slökkvilið, björgunarsveitarmenn, kafarar frá sérsveitinni og þyrla Landhelgisgæslunnar.