Reykjanesbær Í Reykjanesbæ búa rúmlega 22.000 manns en þar hefur um helmingur umsækjenda verið vistaður.
Reykjanesbær Í Reykjanesbæ búa rúmlega 22.000 manns en þar hefur um helmingur umsækjenda verið vistaður. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Vinnumálastofnun hefur tekið á leigu alls 130 búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd frá 1. júlí 2022 til 1. maí 2025, en ekki eru öll í notkun. Þetta kemur fram í svari Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, við fyrirspurn frá…

Baksvið

Magnea Marín Halldórsdóttir

magnea@mbl.is

Vinnumálastofnun hefur tekið á leigu alls 130 búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd frá 1. júlí 2022 til 1. maí 2025, en ekki eru öll í notkun.

Þetta kemur fram í svari Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, við fyrirspurn frá Vilhjálmi Árnasyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins um búsetu hópsins. Vilhjálmur spurði hve mörg hótelherbergi, íbúðir, herbergi eða annað húsnæði Vinnumálastofnun hefði verið keypt eða tekið á leigu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd frá og með árinu 2020 en Inga tekur fram að Vinnumálastofnun hafi tekið við þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd 1. júlí 2022 og því liggi upplýsingarnar ekki fyrir hjá stofnuninni fyrir þann tíma. Þá hafi stofnunin ekki fest kaup á húsnæði „fyrir framangreinda einstaklinga á umræddu tímabili.“

Ójöfn dreifing

Flestir sem dvelja í búsetuúrræðum stofnunarinnar, samkvæmt tölum frá 1. maí, koma frá Venesúela, Úkraínu, Palestínu, Sómalíu eða Írak. Greinilegt er að búsetuúrræðum hefur verið skipt mismikið niður á sveitafélögin. Í Reykjanesbæ búa rúmlega 22.000 manns og í Reykjavíkurborg búa tæplega 139.000 manns, en af 571 einstaklingi á vegum Vinnumálstofnunar hafa 246 verið vistaðir í Reykjanesbæ og 138 í Reykjavík.

Segir svarið ekki nógu skýrt

Í samtali við Morgunblaðið gagnrýnir Vilhjálmur að ekki komi fram í svari Ingu hvort Vinnumálastofnun sé enn bundin leigusamningum um húsnæði sem ekki er nýtt. Hann segir þetta hafa verið kveikjuna að fyrirspurn sinni.

„Það sem er jákvætt er að þetta hefur dregist saman. Breytingar fyrri ríkisstjórnar á útlendingalögum og framkvæmdinni varðandi Venesúela hafa greinilega skilað árangri,“ segir hann. Inga hafi komist hjá því að svara hvort einhverjir leigusamningar hafi nýlega runnið út og hvort eitthvert húsnæði vanti á listann sem Vinnumálastofnun hefði þó verið að borga fyrir í langan tíma.

Á listanum er t.a.m. gistiheimili í Reykjanesbæ sem hefur ekkert verið notað síðan í nóvember en ekki kemur fram í svarinu hvenær leigusamningurinn rennur út. Vinnumálastofnun hefur sem sagt verið að greiða fyrir húsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem staðið hefur autt í hálft ár. Sjoppur og veitingastaðir í nágrenninu hafa því líklega ekki verið að fá til sín ferðamenn frá þessu gistiheimili af því að það stendur autt.

„Kannski hefði ég átt að spyrja nánar, þau svara greinilega bara nákvæmlega því sem er spurt um,“ segir Vilhjálmur.

Árangur síðustu stjórnvalda

„Það jákvæða er að þetta svar sýnir fram á að Vinnumálastofnun var komin með ótrúlega mikið húsnæði og svo eru bara engin not fyrir allt þetta húsnæði af því að árangur síðustu stjórnvalda er bersýnilega að koma í ljós,“ segir Vilhjálmur. Umsækjendum hefði fækkað gríðarlega og fjöldi hælisleitenda sem Vinnumálastofnun hefði verið að sjá um hefði dregist mikið saman. Eftir sitji þó mögulega langtímasamningar um þetta húsnæði og það standi ónotað á meðan verið sé að greiða fyrir afnot af því.

„Það sem vantar inn í svarið er hvað þetta á að vera mikið lengur. Á Vinnumálastofnun eitthvað af þessu húsnæði eða er hún með leigusamning um það í langan tíma í viðbót?“

Höf.: Magnea Marín Halldórsdóttir