Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir
malin@mbl.is
Vísindamenn við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum segja að koma megi í veg fyrir að moskítóflugur beri malaríu til manna með því að gefa flugunum lyf við sjúkdómnum.
Malaría dregur um 600.000 einstaklinga, að stærstum hluta börn, til dauða á ári. Sjúkdómurinn berst í fólk með biti frá sýktri moskítóflugu. Aðaláherslan í baráttunni gegn malaríu er að drepa moskítóflugur með skordýraeitri en nú leggja vísindamenn til leið sem á að lækna flugurnar af malaríu.
Algeng vörn gegn malaríu í löndum þar sem hún er landlæg er að sofa undir flugnaneti. Flugnanetið er húðað eitri sem drepur þær moskítóflugur sem lenda á netinu. Þetta hefur verið áhrifarík leið til að draga úr malaríusmitum en nú hafa moskítóflugur sumra landa myndað ónæmi fyrir eitrinu.
Vísindamenn við Harvard-háskóla hafa fundið tvö lyf sem geta læknað moskítóflugur af malaríu, en lyfið berst í flugurnar í gegnum fætur þeirra. Þeir leggja því til að húða flugnanet með þessum lyfjum í stað skordýraeitursins. Vísindamennirnir greindu erfðaefni malaríu og skoðuðu 22 hugsanleg lyf. Lyfin voru prófuð á moskítóflugum sem hafði verið gefið malaríusýkt blóð. Tvö lyfjanna drápu malaríuna í flugunum í 100% tilvika.
Lyfin voru prófuð á efni sem líkist flugnaneti og áhrif þeirra ættu að sögn vísindamannanna að endast á netinu í um það bil ár. Þá gæti þetta orðið ódýr langtímalausn sem kæmi í stað skordýraeiturs.
Jafnframt halda vísindamennirnir því fram að litlar líkur séu á að malaríusýkillinn myndi ónæmi gegn lyfjunum.