Ráðherrar Utanríkisráðherrarnir funduðu í Keflavík í gær.
Ráðherrar Utanríkisráðherrarnir funduðu í Keflavík í gær. — Ljósmynd/Stjórnarráðið
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og David Lammy utanríkisráðherra Bretlands áttu tvíhliða fund á öryggissvæðinu í Keflavík í gær. Breski ráðherrann kom í stutta vinnuheimsókn til Íslands ásamt sendinefnd og yfirgaf landið samdægurs

Elínborg Una Einarsdóttir

elinborg@mbl.is

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og David Lammy utanríkisráðherra Bretlands áttu tvíhliða fund á öryggissvæðinu í Keflavík í gær. Breski ráðherrann kom í stutta vinnuheimsókn til Íslands ásamt sendinefnd og yfirgaf landið samdægurs. Um var að ræða fyrstu heimsókn utanríkisráðherra Bretlands til landsins í 23 ár.

Í tilkynningu á síðu Stjórnarráðsins segir að á fundinum hafi verið lögð áhersla á öryggis- og varnarmál og náið samstarf þjóðanna í þeim efnum. Auk þess voru tvíhliða samskipti ríkjanna, samskipti þeirra við Evrópusambandið, málefni Atlantshafsbandalagsins og Úkraínu, norðurslóðir og staðan á Gasa til umræðu.

Meðan á dvöl breska utanríkisráðherrans stóð á Íslandi kynnti hann sér starfsemina á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og heimsótti liðsmenn bandaríska flotans sem þar dvelja vegna kafbátaeftirlits Atlantshafsbandalagsins, sem og sveit tékkneska flughersins sem nú sinnir loftrýmisgæslu bandalagsins við Ísland. Dagskrá ráðherrans lauk svo á yfirlitsflugi með þyrlu Landhelgisgæslunnar yfir Grindavík og eldsumbrotasvæðið á Reykjanesskaga.

Á síðu Stjórnarráðsins er haft eftir Þorgerði Katrínu að það hafi verið ánægjulegt að taka á móti breskum starfsbróður hennar og að þau hafi stillt saman strengi í mikilvægum málum, ekki síst er lýtur að öryggis- og varnarmálum á norðurslóðum, í aðdraganda leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í Haag í næsta mánuði.

Höf.: Elínborg Una Einarsdóttir