Mót Pálmi hafði gaman af íþróttum og verður mótið í anda hans.
Mót Pálmi hafði gaman af íþróttum og verður mótið í anda hans.
Æsa Guðrúnardóttir og systkini hennar fjögur standa nú fyrir minningaríþróttamóti um æskuvin sinn Pálma Kristjánsson, sem lést af slysförum 28. febrúar. Mótið er haldið um hvítasunnuhelgina, dagana 6.-9

Magnea Marín Halldórsdóttir

magnea@mbl.is

Æsa Guðrúnardóttir og systkini hennar fjögur standa nú fyrir minningaríþróttamóti um æskuvin sinn Pálma Kristjánsson, sem lést af slysförum 28. febrúar. Mótið er haldið um hvítasunnuhelgina, dagana 6.-9. júní, og hefur fengið nafnið Pálminn 2025. Þema þess er „drengskapur og gleði í anda Pálma“ og verður keppt í fótbolta, körfubolta, badminton og golfi – allt greinar sem Pálmi unni.

„Okkur langaði að minnast fjölskylduvinar okkar,“ segir Æsa, spurð hvernig hugmyndin hafi komið til. „Pálmi var fæddur og uppalinn í Vík og var á milli okkar systkinanna í aldri. Hann var virkur í íþróttum, hafði gaman af því að skemmta sér og koma fólki saman og var mjög vinmargur,“ bætir Æsa við, sem sjálf spilaði badminton með Pálma. Hann tilheyrði mörgum hópum sem spiluðu með honum mismunandi greinar og lá því beinast við að halda stóran viðburð með öllu því sem hann stundaði. „Þá er grundvöllur fyrir alla vinahópana sem hann átti hlutdeild í að hittast og skemmta sér saman og halda uppi minningunni um góðan dreng.“

Skráningargjald mótsins rennur óskipt til sambýliskonu og barnsmóður Pálma. Spurð hvort þau hafi haft markmið um að ná ákveðinni tölu segir Æsa markmiðið vera að „gera okkar besta og reyna að hafa gaman af lífinu meðan það er.“

Höf.: Magnea Marín Halldórsdóttir