Slökkviliðið Verkefnin voru nokkur.
Slökkviliðið Verkefnin voru nokkur. — Morgunblaðið/Karítas
Slökkvilið slökkti eld í tveimur bifreiðum í íbúðagötu í Kópavogi aðfaranótt fimmtudags. Lögregla fer með rannsókn málsins. Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við mbl.is að eldurinn hafi orðið í…

Slökkvilið slökkti eld í tveimur bifreiðum í íbúðagötu í Kópavogi aðfaranótt fimmtudags. Lögregla fer með rannsókn málsins.

Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við mbl.is að eldurinn hafi orðið í Hjallahverfinu en hann segist að öðru leyti ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið.

Einnig var tilkynnt um eld í fellihýsi á höfuðborgarsvæðinu en eigandinn hafði sjálfur slökkt hann áður en slökkvilið kom að, að því er fram kemur í dagbók lögreglu í gær.