Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Hvíta húsið tilkynnti í gær að ísraelsk stjórnvöld hefðu samþykkt tillögu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að vopnahléi á Gasa.
„Ég get staðfest að sérstakur sendifulltrúi [Steve] Witkoff og forsetinn lögðu fram tillögu um vopnahlé fyrir Hamas, sem Ísrael studdi og samþykkti. Ísrael skrifaði undir þessa tillögu áður en hún var send til Hamas,“ sagði Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins.
„Ég get líka staðfest að viðræðurnar halda áfram og við vonum að vonpahléið á Gasa taki brátt gildi svo við getum skilað öllum gíslunum heim,“ hélt Leavitt áfram.
Hamas ekki sátt
Fyrr um daginn höfðu ráðamenn í Hvíta húsinu verið bjartsýnir á að nýja tillaga Trump-stjórnarinnar myndi ná að brúa bilið í vopnahlésviðræðum Ísraels og Hamas.
Í gærkvöldi sögðu fulltrúar hryðjuverkasamtakanna Hamas þó nýju tillöguna ekki mæta þeirra kröfum þegar samtökin kynntu sér hana.
Bassem Naim, samningamaður Hamas, sagði tillöguna ekki til þess fallna að halda aftur af átökunum eða leysa hungursneyðina á Gasa. „Þrátt fyrir það er stjórn hreyfingarinnar að sýna ábyrgð og kynna sér tillöguna,“ sagði hann. Heimildarmaður með tengsl við Hamas sagði nýju tillöguna sem Witkoff afhenti Hamas í gegnum milliliða í gær hafa verið mun óhagstæðari samtökunum en sú sem var kynnt Hamas fyrr í mánuðinum og samtökin samþykktu. Sú tillaga hefði falið í sér „skuldbindingu Bandaríkjamanna gagnvart viðræðum um varanlegt vopnahlé“. „Það verður erfitt fyrir Hamas að samþykkja samninginn ef hann felur ekki í sér að Bandaríkjamenn geti tryggt viðræður um varanlegt vopnahlé á meðan tímabundna vopnahléið stendur yfir,“ sagði heimildarmaðurinn.
Að sögn tveggja heimildarmanna sem þekkja vel til samningaviðræðnanna felur nýja bandaríska vopnahléstillagan í sér 60 daga vopnahlé með möguleika á tíu daga framlengingu og að fyrstu vikuna verði tíu gíslar og níu lík afhent Ísraelsmönnum frá Gasa gegn því að palestínskum föngum verði sleppt úr haldi. Þá verði tíu gíslar og níu lík til viðbótar afhent í annarri viku vopnahléstímabilsins. Segja heimildarmennirnir að Hamas hafi samþykkt svipuð skipti í síðustu vopnahléstillögu nema þá var lagt upp með að skiptin ættu sér stað í fyrstu viku vopnahléstímabilsins og þeirri síðustu.