Glöggt er gests augað er yfirskrift sýningar sem opnuð verður á Sjóminjasafninu í Reykjavík í dag, föstudaginn 30. maí, kl. 16 en það er Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, sem mun opna sýninguna

Glöggt er gests augað er yfirskrift sýningar sem opnuð verður á Sjóminjasafninu í Reykjavík í dag, föstudaginn 30. maí, kl. 16 en það er Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, sem mun opna sýninguna. Segir í tilkynningu að efni sýningarinnar sé ferðir franskra vísindamanna til Íslands árin 1835 og 1836. Að sýningunni standa nemendur á námskeiði á vegum Hagnýtrar menningarmiðlunar við Háskóla Íslands, í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur.