— AFP
Blatten, lítið þorp í svissnesku Ölpunum, varð berghlaupi að bráð á miðvikudag. Karlmanns á sjötugsaldri er saknað en aðrir íbúar höfðu rýmt þrjú hundruð manna þorpið þegar fjallshlíðin gaf sig. Stjórnvöld í Sviss fylgjast nú grannt með svæðinu en…

Blatten, lítið þorp í svissnesku Ölpunum, varð berghlaupi að bráð á miðvikudag. Karlmanns á sjötugsaldri er saknað en aðrir íbúar höfðu rýmt þrjú hundruð manna þorpið þegar fjallshlíðin gaf sig. Stjórnvöld í Sviss fylgjast nú grannt með svæðinu en hætta er á flóði þar sem jarðvegurinn féll yfir ána Lonzu. Vatnið sem hleðst nú upp gæti flætt yfir Loetschental-dalinn og heimili fólks þar.