Grindavík Bilun varð á háspennustreng sem færir bænum rafmagn.
Grindavík Bilun varð á háspennustreng sem færir bænum rafmagn. — Morgunblaðið/Eggert
Allt rafmagn sló út í Grindavík eftir hádegi í gær þegar bilun varð á háspennustreng sem færir bænum rafmagn. Rafmagn komst aftur á seint í gærkvöldi. Eftir að bilunin var staðsett var farið í að grafa niður að strengnum til þess af gera við bilunina

Birta Hannesdóttir

birta@mbl.is

Allt rafmagn sló út í Grindavík eftir hádegi í gær þegar bilun varð á háspennustreng sem færir bænum rafmagn.

Rafmagn komst aftur á seint í gærkvöldi.

Eftir að bilunin var staðsett var farið í að grafa niður að strengnum til þess af gera við bilunina. Viðgerðirnar stóðu yfir fram á kvöld.

Veitingastaðurinn Fish House Grindavík var fullur af erlendum ferðamönnum þegar rafmagnsleysið skall á.

Vísa þurfti öllum gestum staðarins út þar sem ekki var hægt að nota rafmagn til eldunar. Þá höfðu einhverjir gestir þegar fengið mat á diskinn og gátu þeir ekki greitt fyrir máltíðina þar sem posi veitingastaðarins þarfnast rafmagns.

Í samtali við Morgunblaðið segir Kári Guðmundsson veitingamaður að gríðarlegt fjárhagslegt tjón hafi fylgt deginum en hann þurfti að hafa fjóra starfsmenn á launum út daginn án þess að fá inn tekjur á móti.

Átti hann von á enn fleiri gestum um kvöldið enda hafi bærinn verið fullur af erlendum ferðamönnum yfir daginn.

„Maður spyr sig hver kemur til með að borga tjónið,“ segir Kári.

Staðurinn var opnaður aftur í lok apríl eftir að hafa verið lokaður síðastliðna 18 mánuði.

Rætt var við Kára fyrr í mánuðinum, sem þá kvaðst vera tilneyddur að opna staðinn á ný eftir að stuðningsaðgerðum ríkisins við grindvísk fyrirtæki var hætt 30. mars síðastliðinn.

„Þetta er ekki skemmtileg byrjun,“ segir Kári.

Höf.: Birta Hannesdóttir