Guðrún Hafsteinsdóttir
Guðrún Hafsteinsdóttir
Þó að margt hafi breyst í sjávarútvegi hefur eitt staðið í stað: mikilvægi greinarinnar fyrir efnahag Íslands og samfélagið í heild.

Guðrún Hafsteinsdóttir

Íslendingar hafa um áratugaskeið haldið hátíðlegan sjómannadag til að heiðra sjómennina okkar, þessar hetjur hafsins sem hafa staðið vaktina á ólgusjó í blíðu og stríðu. Þessi dagur er ekki aðeins tækifæri til að fagna með fjölskyldum og vinum, heldur fyrst og fremst til að þakka sjómönnum fyrir ómetanleg störf í þágu þjóðarinnar. Á hverjum einasta degi ársins leggja þeir líf sitt og limi í sölurnar til að tryggja okkur hinum afkomu og öryggi; þeir sækja björg í bú yfir úfinn sæ, skapa verðmæti úr auðlindinni og skila þjóðarbúinu gjaldeyristekjum sem undirbyggja lífskjör okkar allra.

Íslendingar eiga langa sögu sjómennsku og sjávartengdrar verðmætasköpunar. Hún er ekki bara hluti af fortíðinni heldur líka af nútíðinni og framtíðinni. Því án öflugrar sjómennsku og öflugs sjávarútvegs værum við allt önnur þjóð. Við Íslendingar þurfum á svona dögum að leiða hugann að hlutskipti sjómanna og átta okkur á að sjálfsögð gæði daglegs lífs; ferskur fiskur á disknum, atvinnutækifæri um land allt, góðar tekjur þjóðarbúsins, koma ekki af sjálfu sér. Þau verða til m.a. fyrir dugnað og þrautseigju sjómannastéttarinnar, sem á skilið virðingu okkar og hlýhug.

Þó að margt hafi breyst í sjávarútvegi hefur eitt staðið í stað: mikilvægi greinarinnar fyrir efnahag Íslands og samfélagið í heild. Sjómenn og sjávarútvegur skapa ekki bara störf og útflutningstekjur – þau skapa líka festu í byggðum og tengingu við náttúruauðlindir landsins. Það skiptir máli fyrir heila þjóð.

Já, sjómenn eru lykilfólk í íslensku atvinnulífi. Þeir veiða af ábyrgð og þekkingu og með þeim hætti sem tryggir að við getum skilað auðlindinni áfram til næstu kynslóða. Sjávarútvegurinn hefur á síðustu áratugum gengið í gegnum gríðarlega umbreytingu – frá erfiðisvinnu í handafli yfir í háþróaða tækni, þekkingu og sjálfbærni. Það er árangur sem við getum verið stolt af. Á sama tíma má ekki gleyma því að starfið sjálft – það að fara á sjó – krefst enn mikils. Það er dýrmætt að þjóðin taki frá dag á hverju ári til að staldra við og þakka sjómönnum fyrir þeirra framlag.

Þess vegna ber okkur skylda til að standa vörð um góð starfsskilyrði sjómanna, öflugt samkeppnishæft umhverfi í sjávarútvegi og að halda áfram að nýta auðlindina á ábyrgðarfullan hátt. Við verðum að tryggja að íslenskur sjávarútvegur verði áfram í fremstu röð, ekki bara í afkomu heldur líka í nýsköpun, sjálfbærni og virðingu fyrir mannauðnum sem knýr hann áfram.

Sem formaður Sjálfstæðisflokksins vil ég nota tækifærið og óska ykkur öllum, fjölskyldum ykkar og landsmönnum til hamingju með daginn. Takk fyrir störfin, framtakið og verðmætin. Takk fyrir að halda áfram að gera Ísland að sterkari, sjálfbærari og öflugri þjóð.

Til hamingju með sjómannadaginn.

Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins.

Höf.: Guðrún Hafsteinsdóttir