Akureyri Byggingarréttur á tveimur lóðum á Torfunesbryggju, Torfunefi 2 og 3, er nú kominn í sölu.
Akureyri Byggingarréttur á tveimur lóðum á Torfunesbryggju, Torfunefi 2 og 3, er nú kominn í sölu. — Tölvumyndir/Nordic Office of Architecture
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Þetta eru ákaflega spennandi tímamót í uppbyggingu á nýju Torfunefi,“ segir Pétur Ólafsson, hafnarstjóri hjá Hafnasamlagi Norðurlands. Samningur milli HN og verktakafyrirtækisins Húsheildar/Hyrnu um byggingu fyrsta hússins á…

Margrét Þóra Þórsdóttir

Akureyri

„Þetta eru ákaflega spennandi tímamót í uppbyggingu á nýju Torfunefi,“ segir Pétur Ólafsson, hafnarstjóri hjá Hafnasamlagi Norðurlands. Samningur milli HN og verktakafyrirtækisins Húsheildar/Hyrnu um byggingu fyrsta hússins á Torfunefssvæðinu hefur verið undirritaður og markar ákveðin skref í uppbyggingu svæðisins.

Hafnarframkvæmdum er loksins lokið og uppbygging á lóðum á Torfunefsbryggju getur hafist. Fyrsta verkið verður þjónustuhús fyrir starfsemi hafnasamlagsins. Jafnframt er búið að bjóða út byggingarétt vegna lóðanna Torfunefs 2 og 3. „Þetta eru gríðarlega spennandi byggingarreitir í hjarta Akureyrarbæjar þar sem áhugasamir fjárfestar geta byggt upp hús sem hýsa ýmiss konar verslun, þjónustu , veitingastaði, skrifstofur eða vinnustofur. Torfunefssvæðið mun tengjast miðbæ Akureyrar og Hofi þannig að vonandi mun miðbæjarsvæðið styrkjast til framtíðar,“ segir Pétur.

Lóðirnar við Torfunef 2 og 3 fela í sér alls fimm byggingarreiti. Samtals eru lóðirnar tvær 4.375 m² að stærð með heildarbyggingarmagn upp á 4.939 m².

Fjölnota samkomusvæði

Nordic Office of Architecture stóð í samstarfi við Hafnasamlag Norðurlands að gerð deiliskipulags fyrir Torfunefsbryggju á Akureyri – svæði sem markar tímamót í þróun hafnarsvæðisins og opnar á fjölbreytta framtíðarsýn í hjarta bæjarins sem fjölnota samkomusvæði þar sem samspil borgar- og náttúruupplifunar er í forgrunni.

Gert verður ráð fyrir að lóðirnar tvær muni hýsa fjölbreytta starfsemi. Pétur segir uppbyggingu lóðanna tveggja vera gott tækifæri fyrir þá sem vilja taka þátt í framtíðarmótun þessa svæðis sem mun verða hluti af stærri heild í að umbreyta hafnarsvæðinu í líflega og vistvæna miðju mannslífs í bænum.

Þakið myndar settröppur

„Á þessu stigi er svæðið nú þegar komið í mótun þar sem áætlað er að framkvæmdir hefjist fljótlega á lóðinni Torfunefi 1 með uppbyggingu á sjónsteyptri þjónustubyggingu fyrir hafnarstarfsemina. Sú bygging er hönnuð með þeim formerkjum að þakuppbygging byggingarinnar myndar settröppur/áhorfendabekki sem snúa að aðliggjandi torgi, en það er hugsað sem afdrep og dvalarstaður fyrir lifandi starfsemi og viðburði fyrir íbúa og gesti bæjarins í hjarta Akureyrar.“

Höf.: Margrét Þóra Þórsdóttir