Brúðubíllinn snýr aftur eftir fjögurra ára pásu og frumsýnir leikritið Leikið með liti á Árbæjarsafni í dag klukkan 14. „Þá munu Lilli, Dúskur, Dónadúskur, Dúskamamma, tröllið undir brúnni og dýrin í Afríku mæta á svæðið og syngja og dansa…
Brúðubíllinn snýr aftur eftir fjögurra ára pásu og frumsýnir leikritið Leikið með liti á Árbæjarsafni í dag klukkan 14. „Þá munu Lilli, Dúskur, Dónadúskur, Dúskamamma, tröllið undir brúnni og dýrin í Afríku mæta á svæðið og syngja og dansa fyrir okkur,“ segir í tilkynningu. Gestir eru hvattir til að koma gangandi, hjólandi eða með almenningssamgöngum en ókeypis er inn. Brúðubíllinn mun ferðast um landið í sumar en sjá má dagskrá bílsins á heimasíðunni brudubillinn.is.