Valur hafði betur gegn Fram, 2:1, í síðasta leik 10. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu að Hlíðarenda í gærkvöldi. Patrick Pedersen og Tryggvi Hrafn Haraldsson skoruðu mörk Vals en Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði mark Framara
Valur hafði betur gegn Fram, 2:1, í síðasta leik 10. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu að Hlíðarenda í gærkvöldi. Patrick Pedersen og Tryggvi Hrafn Haraldsson skoruðu mörk Vals en Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði mark Framara. Eftir leikinn er Valur kominn í mikla toppbaráttu með 18 stig, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Víkings R. Fram er aftur á móti með tólf stig í áttunda sæti deildarinnar. Þetta var lokaumferðin fyrir fyrsta landsleikjahléið. » 27