Hitamet Veðrið lék við landsmenn í maímánuði, sem sló öll met.
Hitamet Veðrið lék við landsmenn í maímánuði, sem sló öll met. — Morgunblaðið/Eyþór
Veðrið í maímánuði lék við landann og aldrei hefur íslenska vorið mælst jafn hlýtt frá upphafi mælinga. Árið 2025 hefur verið óvenju hlýtt og er þetta næsthlýjasta ársbyrjun síðastliðin 75 ár. Hitamet maímánaðar ársins 1974 voru slegin í ár og var afar hlýtt og bjart á landinu

Diljá Valdimarsdóttir

dilja@mbl.is

Veðrið í maímánuði lék við landann og aldrei hefur íslenska vorið mælst jafn hlýtt frá upphafi mælinga. Árið 2025 hefur verið óvenju hlýtt og er þetta næsthlýjasta ársbyrjun síðastliðin 75 ár.

Hitamet maímánaðar ársins 1974 voru slegin í ár og var afar hlýtt og bjart á landinu. Trausti Jónsson veðurfræðingur greinir frá þessu á bloggsíðu sinni þar sem hann segir jafnframt að sólskinsstundir hafi mælst 179 talsins í maí.

Hitabylgja í maí

Samkvæmt Veðurstofu Íslands varð mesta hitabylgja sem vitað er um í maímánuði hérlendis. Hitinn mældist 20 stig eða meira einhvers staðar á landinu 10 daga í röð en slíkir dagar hafa verið að meðaltali tveir til þrír í maí síðastliðin ár. Það var sérstaklega hlýtt á Norðausturlandi en hitinn fór hæst í 26,6 stig á Egilsstaðaflugvelli.

Dagana 13. til 22. maí var óvenjulega hár hiti á landinu. Talið er að hitabylgjan hafi orsakast vegna langvarandi hæðar við Færeyjar sem færðist síðan smám saman yfir Ísland. Það þykir afar óvenjulegt hversu snemma hún var og stóð lengi yfir. Hlýindin náðu hámarki helgina 17.-18. maí en þá fór hitinn upp í 20 stig eða meira á um helmingi allra veðurstöðva landsins.

Hitabylgjur koma af og til hérlendis, þegar hiti mælist hærri en venjulega nokkra daga í röð. Hitabylgjan sem kemst næst þessari var árið 1987 og átti sér stað í mjög svipuðum veðurskilyrðum. Það ríkti einnig mikil hitabylgja á landinu í nokkra daga í júní 1939, þegar hitinn náði 30,5 stigum á Teigarhorni sem er það hæsta sem mælst hefur á Íslandi.