Uppruni höfuðkúpu sem lengi hefur verið meðal húsmuna í útibúi Landsbankans á Ísafirði er nú orðinn verkefni vísindanna. Starfsfólk útibúsins vestra kallaði á dögunum til Margréti Hrönn Hallmundsdóttur fornleifafræðing sem greindi gripinn, en í höfuðkúpuna eru greyptir stafirnir SIGRID
Uppruni höfuðkúpu sem lengi hefur verið meðal húsmuna í útibúi Landsbankans á Ísafirði er nú orðinn verkefni vísindanna. Starfsfólk útibúsins vestra kallaði á dögunum til Margréti Hrönn Hallmundsdóttur fornleifafræðing sem greindi gripinn, en í höfuðkúpuna eru greyptir stafirnir SIGRID. Frekari vísbendingar er ekki að hafa en í húsakynnum bankans vestra hafa þessar líkamsleifar verið að minnsta kosti síðastliðin 20 ár.
„Þetta er ráðgáta sem verður að leysa,“ sagði Margrét Hrönn fornleifafræðingur í samtali við Morgunblaðið í gær. » 4