Átta eru særðir eftir að karlmaður vopnaður bensínsprengjum réðst á friðsaman hóp fólks í borginni Boulder í Colorado í Bandaríkjunum. Var fólkið komið saman til að sýna ísraelskum gíslum stuðning en árásarmaðurinn, sem er 45 ára gamall og af egypskum uppruna, er stuðningsmaður Palestínu. Á sama tíma og hann framdi ódæði sitt hrópaði maðurinn: Frjáls Palestína.
Fórnarlömb mannsins eru á aldrinum 52 til 88 ára og er minnst einn sagður alvarlega slasaður og með brunasár víða um líkamann. Árásarmaðurinn var handtekinn í aðgerðum lögreglu, en árásin er rannsökuð sem hryðjuverk og hatursglæpur.