— Morgunblaðið/Eggert
Leggjum frá okkur símana og gerum eitthvað skemmtilegt saman. Þetta eru þau skilaboð sem foreldraráð Hafnarfjarðar sendir ungmennum bæjarins í átaki sem ætlað er að stuðla að minni skjátíma í sumar. Vilja foreldrar með þessu hvetja unga Hafnfirðinga …

Leggjum frá okkur símana og gerum eitthvað skemmtilegt saman. Þetta eru þau skilaboð sem foreldraráð Hafnarfjarðar sendir ungmennum bæjarins í átaki sem ætlað er að stuðla að minni skjátíma í sumar. Vilja foreldrar með þessu hvetja unga Hafnfirðinga til að eyða tímanum saman í raunheimum, sýna vináttu í verki og njóta sumarsins án símans.

Hafnarfjarðarbær deildi á samfélagsmiðlum myndbandi þar sem átakið er kynnt. Þar koma fram ólíkir einstaklingar á öllum aldri sem allir hafa sömu sögu að segja: Vertu úti með vinum í sumar, draumarnir rætast í raunheimum og náttúran býður upp á heilan heim af ævintýrum og gleði.

Í tengslum við átakið komu ungmenni í gær saman á Thorsplani og hlýddu á VÆB-bræður.