Gular- og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir allt landið í dag. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi vegna veðurs en spár gera ráð fyrir að þar verði veðrið sem verst. Spáð er miklu norðan hvassvirði, snjókomu, slyddu og síðar rigningu.
Skyggni og færð voru tekin að spillast í gærkvöldi og snjóaði á fjallvegum á Norðurlandi. Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir í samtali við Morgunblaðið að veðrið sé eins og við hafi verið að búast. Hann segir spár gera ráð fyrir að áfram muni snjóa á Norðurlandi fram eftir morgni en svo muni hitastig hækka lítillega, sem hafi í för með sér að snjókoman breytist í rigningu yfir láglendi. Verður hún væntanlega í talsverðu magni.
Sunnan heiða verður minni úrkoma, en einhver þó. Hvassast verður í vindstrengjum sunnanlands.
Lægð, sem verður með miðju sína nærri Færeyjum undir hádegi í dag, veldur þessu norðanhreti.
Áðurnefnd lægð ætlar síðan að verða þaulsetin austan við landið og þó að hún verði farinn að grynnast og mesti vindurinn úr henni eftir miðja vikuna eru líkur á að hún nái að viðhalda norðlægri átt með úrkomu og köldu veðri á norðanverðu landinu fram í vikulokin.