Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun vígja nýjan Laugardalsvöll í kvöld þegar það tekur á móti Frökkum í lokaleik Þjóðadeildar Evrópu. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Laugardalnum síðan í október í fyrra og nú er nýr völlur loksins klár
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun vígja nýjan Laugardalsvöll í kvöld þegar það tekur á móti Frökkum í lokaleik Þjóðadeildar Evrópu. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Laugardalnum síðan í október í fyrra og nú er nýr völlur loksins klár. Framkvæmdirnar gengu vel, þökk sé góðu og duglegu teymi að sögn Kristins V. Jóhannssonar vallarstjóra. Hér má sjá nýja völlinn í allri sinni dýrð, grasflöturinn hefur verið endurbættur og færður örlítið vestar. Leikur Íslands og Frakklands hefst klukkan 18. » 4