Yngstur Kristófer Daði Viktorsson fór holu í höggi á 4. holu og er sá yngsti til að ná því á golfvellinum í Vestmannaeyjum.
Yngstur Kristófer Daði Viktorsson fór holu í höggi á 4. holu og er sá yngsti til að ná því á golfvellinum í Vestmannaeyjum.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Um 160 kylfingar að meðaltali ná því að fara holu í höggi á golfvöllum hérlendis á ári, að sögn Guðmundar Óskarssonar formanns Einherjaklúbbsins. Rúmlega 4.000 draumahögg hafa verið tilkynnt til klúbbsins

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Um 160 kylfingar að meðaltali ná því að fara holu í höggi á golfvöllum hérlendis á ári, að sögn Guðmundar Óskarssonar formanns Einherjaklúbbsins. Rúmlega 4.000 draumahögg hafa verið tilkynnt til klúbbsins. Hann heldur árlega mót, venjulega í september, Draumahöggið á Nesinu, fyrir þá sem hafa farið holu í höggi undangengna 12 mánuði. Hver kylfingur slær eitt högg á par þrjú holu og fær bifreið í verðlaun fyrir holu í höggi.

Fyrir skömmu náði 10 ára peyi, Kristófer Daði Viktorsson, draumahögginu á 14. holu í Vestmannaeyjum og er hann sá yngsti til þess að fara holu í höggi í Eyjum. Um svipað leyti fóru Ágúst Húbertsson, 82 ára, og Emil Máni Lúðvíksson, 14 ára, holu í höggi á 4. holu á 14. braut á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Áður höfðu hjónin Hólmfríður M. Bragadóttir og Páll Ingvarsson farið holu í höggi á sama hring á Þorláksvelli í Þorlákshöfn, hann á 10. holu og hún á 15. holu. Ágúst og Hólmfríður voru í þessum sporum í fjórða sinn og komust þar með í Frægðarhöll Einherjaklúbbsins, en þar eru rúmlega 230 manns. Halldór Hansen læknir var fyrstur til að fara holu í höggi, gerði það á golfvelli í Laugardalnum í Reykjavík 1939. Björgvin Þorsteinsson er þar efstur á blaði með níu draumahögg.

Sá yngsti sex ára og elsti 87 ára

Samkvæmt skrá Einherjaklúbbsins er Ragnar Einarsson yngsti kylfingurinn til að fara holu í höggi, en hann var sex ára, þegar hann náði því 1994. Einn átta ára hefur afrekað það, fimm níu ára og þrír tíu ára fyrir utan Kristófer Daða. Ármann Þórðarson er sá elsti, náði árangrinum 2016, þegar hann var 87 ára.

„Ég fór holu í höggi. Jesús,“ sagði Kristófer Daði, þegar hann áttaði sig á afrekinu og hljóp fagnandi til föður síns, Viktors Hólm Jónmundssonar, sem tók viðbrögðin upp á síma sinn og eru þau aðgengileg á kylfingur.is. Þetta var fyrsti skráði golfhringur peyjans, en hann hefur æft golf undanfarin þrjú ár. Pabbi hans sló fyrst á 14. holu. „Það var 20 til 30 metra högg, hræðilegt,“ lýsir Kristófer Daði aðdragandanum. „Ég sagði samt ekki neitt, tók kylfuna og sló ofan í.“

Kristófer Daði komst á bragðið fjögurra ára. „Þá fékk ég býflugusett,“ segir hann. Bætir við að hann æfi einnig pílukast, fótbolta, handbolta og badminton. „Mér finnst skemmtilegast í handbolta.“ Móðir hans, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, var afrekskona í íþróttinni, var m.a. fyrirliði landsliðsins og skoraði 630 mörk í 170 landsleikjum á tæplega 20 árum. Síðasti landsleikur hennar var 2013 og þá sneri hún sér að þjálfun. Viktor Hólm náði draumahögginu á óskráðum velli og því er hann ekki skráður einherji. „Ég er alla vega betri en mamma í golfi,“ klykkir Kristófer Daði út með og vísar til þess að hún hafi ekki enn náð draumahögginu.

Höf.: Steinþór Guðbjartsson