Karol Nawrocki, frambjóðandi stjórnarandstöðuflokksins PiS, bar sigur úr býtum í seinni umferð pólsku forsetakosninganna sem fram fóru á sunnudag. Talningu atkvæða lauk á fimmta tímanum í gærmorgun að íslenskum tíma og hlaut sagnfræðingurinn Nawrocki 50,8 prósent atkvæða en keppinautur hans, Rafal Trzaskowski, borgarstjóri Varsjár og fyrrverandi ráðherra og þingmaður á Evrópuþinginu, hlaut 49,1 prósent.
Fyrstu útgönguspár bentu til þess að Trzaskowski héldi forystu og lýsti hann yfir sigri á kosningavöku sinni. Narowcki sagði slíkt þó ótímabært og lýsti síðan síðar sjálfur yfir sigri.
Mikil kosningaþátttaka
„Til hamingju með sigurvegarann,“ skrifaði fráfarandi forseti, Andrzej Duda, í færslu á samfélagsmiðlinum X þegar úrslitin lágu fyrir. Duda þakkaði Pólverjum fyrir að rækja borgaralega skyldu sína og fyrir góða kosningaþátttöku, en hún var 71,6 prósent.
Nawrocki naut stuðnings hægri stjórnarandstöðuflokksins Laga og réttlætis (PiS), sem var við völd í Póllandi á árunum 2015 til 2023, og fráfarandi forseta, Andrzejs Duda. Nawrocki hefur enga póllitíska reynslu en segist vera stoltur þjóðernissinni.
Nawrocki heimsótti Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsið meðan á kosningabaráttunni stóð en hann er mikill aðdáandi Trumps. Nawrocki átti samtal við Trump um bandalag og samstarf á milli Póllands og Bandaríkjanna. Þingmenn pólska þingsins gagnrýndu Nawrocki fyrir að funda með Bandaríkjaforseta í aðdraganda kosninganna.
Pólskir forsetar hafa áhrif á m.a. utanríkis- og varnarmálastefnu.