Strandveiðar Hér má sjá Sigurlaugu SK 138 á hafi úti en báturinn hefur síðan breytt um heimahöfn og ber nú nafnið Sigurlaug ÓF 38.
Strandveiðar Hér má sjá Sigurlaugu SK 138 á hafi úti en báturinn hefur síðan breytt um heimahöfn og ber nú nafnið Sigurlaug ÓF 38. — Ljósmynd/Þorgrímur Ómar Tavsen
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar, hefur selt 51% eignarhlut sinn í Sleppu ehf. en eiginkona Sigurjóns, Svava Ingimarsdóttir, heldur áfram á 49% hlut í félaginu

Andrea Sigurðardóttir

andrea@mbl.is

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður atvinnuveganefndar, hefur selt 51% eignarhlut sinn í Sleppu ehf. en eiginkona Sigurjóns, Svava Ingimarsdóttir, heldur áfram á 49% hlut í félaginu.

Kaupandi hlutar Sigurjóns er Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir, fædd árið 1997 og búsett í Færeyjum.

Samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins er Sigurjón Þórðarson enn stjórnarformaður félagsins og eiginkona hans framkvæmdastjóri. Saman fara þau hjónin með prókúru í félaginu. Lögheimili félagsins er jafnframt á lögheimili hjónanna.

Nýr meirihlutaeigandi í bátnum situr hvorki í stjórn né framkvæmdastjórn og fer ekki með prókúru fyrir félagið, að minnsta kosti ekki enn sem komið er.

Sleppa ehf. hefur á síðustu árum gert út fiskiskipið Sigurlaugu ÓF 38, áður Sigurlaugu SK 138, til strandveiða. Félagið velti 4,5 milljónum króna á síðasta ári og hagnaðist um 1,3 milljónir. Eigið fé félagsins var neikvætt um 4 milljónir um áramót en skuldir félagsins við tengda aðila námu 24 milljónum.

Sigurjón vildi sem minnst ræða við blaðamann um sölu eignarhlutar síns. Spurður hvort það stæði jafnframt til að selja eignarhlut eiginkonunnar svaraði hann:

„Þetta kemur mér ekki við.“

Ekki á hagsmunaskrá

Vakin var athygli á því í Spursmálum á mbl.is í febrúar sl. að Sigurjón, sem þá var nýlega tekinn við sem formaður atvinnuveganefndar, hefði ekki sinnt upplýsingaskyldu sinni hvað varðar skráningu á útgerðinni við hagsmunaskráningu Alþingis.

Á sama tíma lá fyrir að ríkisstjórnin ætlaði sér að tryggja 48 daga strandveiðar með reglugerð, en fram til þessa hefur strandveiðikvótinn yfirleitt klárast áður en tímabilinu lýkur.

Ríkisstjórnin ákvað þetta fyrir atbeina Flokks fólksins, sem hefur beitt sér ákaft fyrir því að stórefla strandveiðar við strendur Íslands. Sigurjón hefur verið meðal þeirra sem fremst hafa farið í þeirri umræðu.

Það varð snemma ljóst að strandveiðisjómenn gætu allt að tvöfaldað tekjur sínar á yfirstandandi tímabili miðað við síðasta ár og ljóst að útgerðin sem þá var í eigu Sigurjóns og eiginkonu hans gæti notið verulega góðs af þessum breytingum. Hinir auknu tekjumöguleikar eru aftur líklegir til þess að hafa jákvæð áhrif á verð á strandveiðibátum.

Sleppa ehf. keypti Sigurlaugu árið 2022 í Færeyjum á 475.000 danskar krónur, sem þá námu tæplega níu milljónum íslenskra króna. Ekki liggur fyrir hversu hátt verð Sigurjón fékk greitt fyrir hlut sinn í Sleppu ehf.

Hömlur á sölu hluta

Félagið Sleppa ehf. var stofnað árið 2016 af Sigurjóni og Jóni Gísla Jóhannessyni. Árið 2019 var gerð breyting á stjórn og Svava Ingimarsdóttir kom inn í stað Jóns Gísla.

Hömlur eru á viðskiptum með hluti félagsins en samkvæmt samþykktum félagsins, sem síðast voru uppfærðar árið 2019, kemur fram að stjórn þess hafi forkaupsrétt fyrir félagsins hönd að fölum hlutum. Að félaginu frágengnu hafa hluthafar forkaupsrétt í hlutfalli við eignarhlut sinn.

Höf.: Andrea Sigurðardóttir