Blendigras Stelpurnar okkar tóku fyrstu æfingu á nýja grasinu í gær, en fyrsti leikur er í kvöld. Vallarstjórinn vonast til að fá góðan vígsluleik.
Blendigras Stelpurnar okkar tóku fyrstu æfingu á nýja grasinu í gær, en fyrsti leikur er í kvöld. Vallarstjórinn vonast til að fá góðan vígsluleik. — Morgunblaðið/Eyþór
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Nýr grasvöllur á Laugardalsvelli verður frumsýndur í kvöld þegar íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tekur á móti því franska í síðasta leik Þjóðadeildar Evrópu og síðasta leik landsliðsins fyrir Evrópumeistaramótið

Björn Diljan Hálfdanarson

bdh@mbl.is

Nýr grasvöllur á Laugardalsvelli verður frumsýndur í kvöld þegar íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tekur á móti því franska í síðasta leik Þjóðadeildar Evrópu og síðasta leik landsliðsins fyrir Evrópumeistaramótið.

Miklar framkvæmdir hófust á svæðinu um miðjan október síðastliðinn og nú á loksins að leika á nýja vellinum.

„Við erum með rosalega gott teymi hérna, við erum með duglega stráka sem vinna hér langt fram eftir og ég held að vinnan í vetur hafi skilað frábærum velli,“ segir Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar.

Á nýja vellinum er svokallað hybrid-gras eða blendigras, sem hentar vel íslenskum aðstæðum. „Þetta er blanda af alvöru grasi
og gervigrasi, grasið er 97% og gervigrasið 3%. Þetta er í stuttu máli styrking við rótarkerfið og hjálpar okkur að hafa meiri gæði
á grasfletinum,“ bætir Kristinn við.

Auk nýja grassins hefur völlurinn verið færður í átt að gömlu stúkunni, við vesturhlið hans. „Já, við færðum völlinn um átta metra í vesturátt, vissulega virkar þetta langt en það er enn mjög fínt að sitja í Sýnarstúkunni austan megin,“ segir Kristinn.

„Við teljum að við höfum náð að skila vellinum í því standi sem við ætluðum okkur en vissulega munum við nýta sumarið í að fínpússa hluti,“ segir hann enn fremur.

„Við erum bara spenntir fyrir deginum og viljum fá fullan völl og góðan vígsluleik á nýjum velli,“ bætir Kristinn við í lokin.

Höf.: Björn Diljan Hálfdanarson