Fornleifafundur Margrét Hrönn Hallmundsdóttir með skyndirannsókn í bankanum. Berghildur Árnadóttir bankakona hér sitjandi við borðið.
Fornleifafundur Margrét Hrönn Hallmundsdóttir með skyndirannsókn í bankanum. Berghildur Árnadóttir bankakona hér sitjandi við borðið. — Ljósmyndir/Kristín Ósk Guðmundsdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Af hverju höfuðkúpan endaði í bankanum er ráðgáta sem verður að leysa,“ segir Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur í samtali við Morgunblaðið. Hún starfar á Vestfjörðum og á dögunum var leitað til hennar vegna höfuðkúpu sem…

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Af hverju höfuðkúpan endaði í bankanum er ráðgáta sem verður að leysa,“ segir Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur í samtali við Morgunblaðið. Hún starfar á Vestfjörðum og á dögunum var leitað til hennar vegna höfuðkúpu sem lengi hefur verið meðal lausamuna í útibúi Landsbankans á Ísafirði. Óskað var eftir greiningu á því hvort kúpan væri eftirlíking eða raunveruleg. Rétt þótti að fá fornleifafræðing til að úrskurða þar um.

„Mér var ljúft og skylt að verða við þessari óvenjulegu beiðni,“ segir Margrét Hrönn. „Ég mætti í bankann á Ísafirði og get staðfest að þetta er raunverulega höfuðkúpa. Hins vegar er óvenjulegt að hún er lökkuð að utan og á hana hafa verið letraðir eða ristir stafir, greinilega má sjá SIGRID. Fleiri stafir eru ógreinilegir og líklega hefur staðið þarna SIGRÍÐUR.“

Greining yrði dýr

Höfuðkúpan er nú í vörslu Margrétar Hrannar, sem með öðru er staðarhaldari á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Hún segir hægt að taka gripinn til greiningar á aldri og öðru, samanber hvað gert var af Íslenskri erfðagreiningu þegar höfuðbein fundust í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík haustið 2023. Slík rannsókn myndi þó verða afar dýr.

Minjaverði Vestfjarða hefur verið gerð grein fyrir höfuðkúpunni sem verður skilað inn á Þjóðminjasafn Íslands, eins og vera ber þegar mannabein og aðrar slíkar minjar finnast.

Ekki úr minni tíð

Útibú Landsbankans á Ísafirði er í húsinu í Hafnarstræti 19, en þangað var starfsemin flutt fyrir fáeinum árum eftir að hafa verið í áratugi í húsi númer 16 við sömu götu. Margrét Hrönn hefur orð bankafólks fyrir því að hauskúpan hafi verið meðal húsmuna þar að minnsta kosti síðastliðin 20 ár, en sá er starfsaldur þeirra sem lengst hafa starfað í útibúinu.

„Nei, úr minni tíð man ég ekki eftir neinni höfuðkúpu, hvorki á minni skrifstofu né annars staðar í bankahúsinu. Ég kem alveg af fjöllum í þetta skiptið. Gæti ég þó rifjað upp margt merkilegt frá Ísafjarðarárum mínum,“ segir Birgir Bjarndal Jónsson sem var útibússtjóri Landsbankans á Ísafirði á árunum 1986-1995.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson