Álestur Vegagerðin á ekki að lesa af.
Álestur Vegagerðin á ekki að lesa af. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Frá okkar hlið er þetta ekki mál. Við rákum augun í það að í þessu frumvarpi var Vegagerðin talin upp sem álestraraðili. Við gerðum athugasemd og fengum það svar að Vegagerðinni væri ekki ætlað aukið hlutverk

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

„Frá okkar hlið er þetta ekki mál. Við rákum augun í það að í þessu frumvarpi var Vegagerðin talin upp sem álestraraðili. Við gerðum athugasemd og fengum það svar að Vegagerðinni væri ekki ætlað aukið hlutverk. Það er svar sem ég tel gott og gilt og ég veit ekki betur en að okkar athugasemd hafi verið tekin til greina,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar um frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald á ökutæki sem liggur fyrir Alþingi.

Eftir að Morgunblaðið greindi frá því í síðustu viku að Vegagerðin væri ekki í hópi umsagnaraðila um frumvarp sem gerir ráð fyrir því að stofnunin eigi að sinna álestri brást ráðuneytið við með tilkynningu um að ekki væri gert ráð fyrir auknu hlutverki Vegagerðarinnar í frumvarpinu.

Bergþóra treystir því að þegar frumvarpið komi úr nefnd verði búið að afmá nafn stofnunarinnar sem álestraraðila.

„Við rákum augun í það að þetta gengur ekki alveg upp og sendum inn umsögn og höfum ekkert meira um málið að segja. Svo sé ég það í fjölmiðlum að það standi ekki til að ætla okkur annað hlutverk og ég er bara ánægð með það. Svo verðum við bara að sjá hvernig þetta lítur út þegar nefndin skilar af sér.“

Hún segist sátt við svar ráðuneytisins um að ekki sé gert ráð fyrir því að Vegagerðin sinni álestri nema í undantekingartilvikum og lítur svo á að það sé niðurstaðan í málinu.

Höf.: Óskar Bergsson