Ingibjörg Isaksen
Ingibjörg Isaksen
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, og Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafa bæði verulegar áhyggjur af frumvarpi Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem mælir fyrir um að tengja skuli greiðslur úr almannatryggingakerfinu við launavísitölu

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, og Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafa bæði verulegar áhyggjur af frumvarpi Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem mælir fyrir um að tengja skuli greiðslur úr almannatryggingakerfinu við launavísitölu.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent velferðarnefnd Alþingis minnisblað þar sem frumvarpið er harðlega gagnrýnt. Í minnisblaðinu er bent á að frumvarpið geti haft ófyrirsjáanleg áhrif á ríkissjóð. Bæði sitja þau Ingibjörg og Njáll í velferðarnefnd þingsins.

Ingibjörg segir þetta enn eitt dæmið um að ríkisstjórnin leggi fram mál án þess að hafa ráðist í fullnægjandi greiningarvinnu. Hún telur ólíklegt að málið farið óbreytt í gegnum þingið.

Njáll segir að ráðuneytið taki í minnisblaðinu undir þau sjónarmið sem hann hafi talað um innan nefndarinnar. Hann telur skynsamlegt að fresta afgreiðslu málsins. » 6