Fermingarveisla Auðunn Blöndal og Steinþór Hróar á sviðinu um helgina.
Fermingarveisla Auðunn Blöndal og Steinþór Hróar á sviðinu um helgina. — Ljósmynd/Hafsteinn Snær Þorsteinsson
Mildi þykir að enginn hafi látist eða slasast lífshættulega á tónleikum FM95Blö á laugardagskvöld. Þrír voru fluttir á bráðamóttöku Landspítala af tónleikunum og alls þurftu fimmtán manns aðhlynningu á bráðamóttökunni eftir tónleikana

Freyr Bjarnason

freyr@mbl.is

Mildi þykir að enginn hafi látist eða slasast lífshættulega á tónleikum FM95Blö á laugardagskvöld. Þrír voru fluttir á bráðamóttöku Landspítala af tónleikunum og alls þurftu fimmtán manns aðhlynningu á bráðamóttökunni eftir tónleikana.

Grunnhugsun vantaði í fjöldastjórnun við skipulagningu tónleikanna, sem fram fóru í Laugardalshöll. Böðvar Tómasson, byggingar- og brunaverkfræðingur og framkvæmdastjóri Örugg verkfræðistofu, segir í samtali við mbl.is að það hafi komið honum á óvart að þetta skyldi gerast núna, en hann hefur veitt ráðgjöf í tengslum við stórtónleika hérlendis með flytjendum á borð við Justin Timberlake, Justin Bieber, Guns N’ Roses, Rammstein og Ed Sheeran.

Hann bendir á að öflug umgjörð hafi verið í kringum öryggismál og skipulag á flestum af þeim tónleikum sem hafi verið í gangi undanfarin ár og þeim tónleikum sem hann hafi komið að.

„Það þarf að vera búið að hugsa þetta út í eitt, alveg til enda. Það sem er algjörlega augljóst í þessu er að það var í raun og veru í prinsipp engin hugsun á bak við þessi atriði,“ segir Böðvar.

Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að mikilvægt sé að draga lærdóm af því sem gerðist á tónleikunum. Alvarleg staða hafa komið upp á tónleikunum.

„Svona tónleikahald er orðið dálítið rútíneraður hlutur. Fólk er orðið vel þjálfað í þessu en svona atburður hefur ekki komið lengi. Ég vona svo innilega að við lærum af þessu, bæði varðandi innra skipulag og ytra,“ segir Jón Viðar spurður út í það sem gerðist.

Skemmtikraftarnir Auðunn Blöndal, Steinþór Hróar Steinþórsson og Egill Einarsson standa að baki FM95Blö og voru tónleikarnir haldnir vegna 14 ára afmælis útvarpsþáttanna, sem eru á dagskrá útvarpsrásarinnar FM957. Tónleikarnir, sem kallaðir voru fermingarveisla, voru sjálfstæður viðburður og ekki á vegum Sýnar.

Höf.: Freyr Bjarnason