Laxveiðitímabilið fór formlega af stað 1. júní þegar veiði hófst í Urriðafossi í Þjórsá. Óhætt er að segja að opnunin hafi verið með ágætum og staðið undir væntingum, en veiðimenn lönduðu 12 löxum fyrsta daginn. Voru þeir á bilinu 74 til 96 sentímetrar.
Á næstu dögum verða fleiri laxveiðiár opnaðar. Þannig bíða margir spenntir eftir því að sjá hvernig Norðurá í Borgarfirði byrjar, en lax hefur sést þar með fyrra fallinu nú í vor. Veiði hefst í Norðurá á morgun og í Blöndu á fimmtudag. Illviðrið sem nú er í kortunum getur vissulega sett strik í reikninginn. Eða eins og einn veiðimaður sem verður við opnun Norðurár missti út úr sér: „Það haustar snemma þetta vorið.“ Þegar líður á mánuðinn verða árnar opnaðar hver á fætur annarri og þær síðustu um mánaðamótin júní-júlí.
Opnunarhollið í Urriðafossi var skipað landeigendum og leigutökum. Haraldur Einarsson og Birna Harðardóttir, bændur á Urriðafossi, voru við veiðar ásamt Hörðu Hlín Þórðardóttur og Stefáni Sigurðssyni, en félag á þeirra vegum er með svæðið á leigu. Fimmti maður var svo sonur þeirra, Matthías Stefánsson, sem einmitt landaði 96 sentímetra hæng í veiðistaðnum Hulda. Veiðivefur mbl.is, Sporðaköst, fylgist grannt með opnunum og framgangi mála í laxveiðinni í sumar.